Landsliðsþjálfari í Bridge

fimmtudagur, 5. febrúar 2015
Landsliðsþjálfari í Bridge
Ragnar Hermannsson, sjúkraþjálfari og handknattleiksþjálfari hefur verið ráðinn landsliðþjálfari fyrir íslenska karlalandsliðið í Bridge. Bridgesambandið og Ragnar hafa gert samkomulag um að hann verði þjálfari og fyrirliði landsliðsins fram yfir Evrópumótið í Bridge sem haldið verður í Budapest í júní 2016.                          Næsta verkefni landsliðsins er að verja Norðurlandameistaratitilinn en Norðurlandamótið verður haldið í Færeyjum í lok maí.Ragnar hefur verið öflugur brigespilara í gegnum árin og hefur áður komið að þjálfun bridgelandsliðsins. Hann var sjálfur í liðinu þegar Ísland varð Norðurlandameistari í júní 2013. Ragnar er jafnframt þjálfari meistaraflokks kvenna í handbolta hjá Stjörnunni og mun halda því starfi áfram.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar