Icelandair - Reykjavík Bridge Festival

fimmtudagur, 29. janúar 2015

Menntamálaráðherra, Illugi Gunnarsson mun setja Bridgehátiðina  "Icelandair Reykjavík Bridge Festival 2015"  -  sem hefst þann 29. janúar kl. 19:00.        
Keppt er á Hótel Natura (Loftleiða hótelið)  Þetta er stærsta bridgemót sem haldið hefur verið hér á landi, en keppendur verða um 420, þar af er um helmingur erlendir keppendur. Nokkrir af bestu bridgespilurum heims taka þátt í mótinu. Þar má sennilega fremstan telja Zia Mahmood sem kemur með sterka sveit. Þýska landsliðið mætir, Danir og Svíar eru með sterkar sveitir. Hjördís Eyþórsdóttir, Heimsmeistari kvenna í sveitakeppni með liði sínu Bandaríkjunum  Norðmenn fjölmenna eins og svo oft áður. Rune Hauge einn þekktasti umboðsmaður knattspyrnumanna í Evrópu kemur með sterka sveit.                      
Frá Danmörku kemur Gustav "Gus" Hansen einn frægast pókerspilari heimsinins. Hann hefur tekið ástfóstri við bridge til að styrkja sig í átökunum við póker spilaborðið. Allir bestu bridgespilara Íslands taka þátt í þessu móti.Mótið hefst þann 29. janúar kl. 19.00 og stendur til sunnudags kl. 18.00, en þá fer verðlaunaafhending fram.  Áhorfendur eru velkomnir á staðinn til að fylgjast með.  Aðgangur er ókeypis.    "Bridge gerir lífið skemmtilegra". 
Hér er hægt að fylgjst með mótinu    http://reykjavikbridgefestival.com/  

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar