Ísak Örn Sigurðsson og Stefán Jónsson Íslandsmeistarar í sagnkeppni 2009

þriðjudagur, 8. desember 2009

Íslandsmótið í sagnakeppni  var haldið föstudagskvöldið 11. desember 2009. Mótið er að festa sig í sessi, öll umgjörð mótsins einnig fastmótaðri. Fyrst var mótið haldið haustið 2006 og þá sigruðu Sigurbjörn Haraldsson og Bjarni Einarsson, margreynd landsliðspör.  Anton Haraldsson sá um framkvæmd keppninnar þá, 33 spil melduð á 90 mínútum. Haustið 2008 var þráðurinn tekinn upp aftur með þátttöku aðeins fjögurra para og urðu þá sigurvegarar  Aðalsteinn Jörgensen - Sverrir Ármannsson með 194 stig eftir að hafa meldað 30 spil á 90 mínútum.  Í ár var áfram miðað sama spilafjölda og var þátttakan nú orðin 9 pör og nú byrjuðu allir á sama tíma. Eftir mikl átök við að halda sér innan knapps tímaramma og mikla einbeitingu urðu nýjir Íslandsmeistarar  Ísak Örn Sigurðsson og Stefán Jónsson  með 183 stig 2.  Gunnlaugur Sævarsson og Runólfur Jónsson  175 3.  Hlynur Garðarsson - Kjartan Ásmundsson  1684.  Ómar Olgeirsson - Sveinn R. Eiríksson  1625.  Friðjófur Einarsson - Guðbrandur Sigurbergsson  1476.  Ásgeir Ásbjörnsson - Hrund Einarsdóttir  1467.  Sverrir Þórisson - Gunnlaugur Karlsson  1358.  Halldór Þorvaldsson - Hulda Hjálmarsdóttir  111

9.  Daníel Sigurðsson - Guðmundur Snorrason  84

Umsjón með mótinu var í höndum mótanefndar og voru Ragnheiður Nielsen og Jörundur Þórðarson keppnisstjórar. BSÍ óskar nýjum Íslandsmeisturum til hamingju!

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar