Sveit Esther Jakobsdóttur Íslandsmeistari í Parasveitakeppni 2009

laugardagur, 28. nóvember 2009

Það var mikil spenna alla helgina því mjótt var á munum á milli efstu sveita frá fyrstu til síðustu umferð.

Sveitir Esther Jakobsdóttur og Ljósbrá Baldursdóttur enduðu að lokum jafnar í efsta sæti og varð að grípa til reglugerðar til að finna sigurvegara. Sveit Esther vann á innbyrðisviðureign.


Með Esther spiluðu: Anna Þóra Jónsdóttir, Ragnar Hermannsson, Aron Þorfinnsson og Guðmundur Snorrason.
Á myndina vantar Aron Þorfinnsson

Sveit Esther er óskað til hamingju með sigurinn!!

Heimasíða Parasveitakeppni 2009 

  Skráningarlisti

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar