Kjördæmamót 2009

þriðjudagur, 17. mars 2009

Kjördæmamótið í bridge verður að þessu sinni á Austurlandi - innan um hin fögru fjöll Austfjarða
Spilað er  helgina 23-24  maí á Eskifirði. 
Upplýsingar um gistingu er hægt að fá hjá Einari í s. 892-1208
Kjördæmin eru beðin um að senda skráningarlista til BSÍ fyrir fimmtudaginn 15.maí n.k.
Nánari upplýsingar verða settar á netið þegar nær dregur. 
Má til með að láta þessa skemmtilegu vísu fylgja hér með sem ort var í snatri í tilefni Kjördæmamótsins
Höfundurinn býr á Akureyri
        Mörg þar sögnin sögð mun snjöll
        og sjálfstraust aldrei bila,
        ef "innan um hin fögru fjöll"
        fæ ég bridge að spila.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar