Deildakeppnin hálfnuð
sunnudagur, 14. október 2007
Nú er lokið fyrri helgi í deildakeppni Bridgesambands Íslands og
í 1. deild leiðir Eykt, en sveit Karls Sigurhjartarsonar er í öðru
sæti.
Í 2. deild eru sveitir Málningar og Sparisjóðsins í
Keflavík sem leiða hjörðina.
Sjá öll
úrslit.
Hin vinsæla Deildakeppni verður í ár spiluð á tveimur helgum
(13.-14. október og 17.-18. nóvember) eins og undanfarin ár og
spilað verður í tveimur deildum. Keppnisgjald verður 24.000 krónur
á sveit, það sama og í fyrra. Spilað verður frá klukkan 11:00 á
laugardag og frá klukkan 10:00 á sunnudag. Fjórtán spila leikir í
fyrstu deild og tvöföld umferð en þátttökufjöldi ræður lengd leikja
í annarri deild. Spilarar eru hvattir til þess að vera með í
þessari skemmtilegu keppni og vonast BSÍ eftir góðri þátttöku.
Núverandi sigurvegari fyrstu deildar er sveit Eyktar. Skráning í
keppnina á vef BSÍ, bridge.is eða í síma BSÍ 587 9360.
Dagskrá
1. deild 14 spila
leikir - tvöföld umferð
2. deild fyrri
helgi 7 leikir monrad
seinn helgi einnig 7 leikir monrad þannig að sveitir geta mæst
tvisvar sinnum.
Laugardagur
1. Umferð
11:00 - 12:45
2. Umferð
13:00 - 14:45
HLÉ
3. Umferð
15:15 - 17:00
4. Umferð
17:15 - 19:00
Sunnudagur
5. Umferð
10:00 - 11:45
HLÉ
6. Umferð
12:15 - 14:00
7. Umferð
14:15 - 16:00
Heimasíða mótsins er í vinnslu
en nú má sjá reglugerðir og síðar í dag koma aðrar
upplýsingar.