ÁRSÞING BSÍ

mánudagur, 15. október 2007

Ársþing BSÍ verður haldið í húsnæði Bridgesambands Íslands sunnudaginn 21. október og hefst klukkan 10:00 að morgni. Félög innan hreyfingarinnar hafa setu- og atkvæðisrétt á þinginu samkvæmt kvótaútreikningi skilagreina en áheyrnarfulltrúa eru velkomnir að sitja þingið. Ef einhver hefur hug á að sitja þingið án þess að vera fulltrúi félags, sendi viðkomandi inn umsókn með tölvupósti á póstfangið bridge@bridge.is

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar