Ný mótaskrá komin út!

föstudagur, 31. ágúst 2007

Búið er að gefa út mótaskrá BSÍ fyrir tímabilið 2007-2008. 
Tímasetningar móta eftir áramót gætu tekið breytingum eftir stjórnarfund BSÍ 5. september og/eða eftir ársþing BSÍ 21. október.

Svæðaformenn eru beðnir um að senda á bridge@bridge.is tímasetningar svæðamóta og annarra móta, sem allra fyrst móta fyrir áramót.
Einnig væri gott að láta skrifstofu BSÍ vita ef breytingar hafa orðið á spiladögum eða tengiliðum/formönnum félaga.

Athygli er vakin á því að miðað við þessa mótaskrá verða úrslit Íslandsmóts í sveitakeppni í kringum sumardaginn fyrsta en ekki páskana.

Allar ábendingar varðandi mótaskrána er vel þegnar.

Góðar stundir við græna borðið í vetur!

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar