ISLANDSMÓT KVENNA Í SVEITAKEPPNI 3.-4. MARS

miðvikudagur, 21. febrúar 2007

Íslandsmót kvenna í sveitakeppni verður háð helgina 3.-4. mars. Keppt verður um réttinn "Íslandsmeistari kvenna í sveitakeppni 2007" auk þess sem efsta sveitin vinnur sér rétt til að skipa landslið Íslands á Norðurlandamótinu í Lillehammer í sumar. Keppnisgjald er 12.000 krónur á sveit. Skráning í mótið er þegar hafin og hægt að skrá sig á vefsíðunni bridge.is og í síma BSÍ 587 9360. Nánar verður tilkynnt um tilhögun mótsins þegar nær dregur. Keppnisstjóri verður Sveinn Rúnar Eiríksson. Mótið hefst klukkan 11:00 laugardaginn 3. mars og lýkur fyrir kvöldmat 4. mars.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar