BRIDGEHÁTÍÐ 2007

miðvikudagur, 24. janúar 2007

Bridgehátíð 2007 verður haldin dagana 15.-18. febrúar næstkomandi á Hótel Loftleiðum. Skráning er þegar hafin og hægt að skrá sig hér á síðunni.

Keppnisgjald í tvímenning: 12.000 á parið
Keppnisgjald í sveitakeppni: 26.000 á sveitina

Keppendur sem skrá sig eru vinsamlega beðnir um að gefa upplýsingar um nöfn, heimilisföng og kennitölu vegna greiðslu keppnisgjalds. Best er að þeir sem hyggja á þátttöku millifæri keppnisgjaldið áður en þátttaka er hafin, til að minnka álag á innheimtu á spilastað. Hægt er að leggja keppnisgjald inn á banka 0115, höfuðbók 26 og reikning 5431 og koma þarf skýrt fram fyrir hvað er greitt og hver framkvæmir greiðsluna. Kennitala BSÍ er 480169 4769. Keppendur sem millfæra, sendi afrit eða staðfestingu þess á BSÍ  að greiðsla keppnisgjalds hafi verið innt af hendi.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar