HM í Verona

mánudagur, 19. júní 2006

Tvö pör af þremur úr íslenska landsliðinu í opna flokknum tóku þátt í HM í Verona á Ítalíu: Matthías G. Þorvaldsson, Magnús E. Magnússon, Bjarni H. Einarsson og Sigurbjörn Haraldsson. 

Íslendingar unnu Vasilev auðveldlega í 64-liða úrslitum og spiluðu við Chagas frá Brasilíu 32-liða úrslitum. Töpuðu þar naumlega 120 - 133.

Matti og Maggi endðu í 19.sæti í 72 para úrslitum opna heimsmeistaramótsins í tvímenning. Kínverjar heimsmeistarar.

1. Fu - Zhao Kína

2. Levin - Weinstein USA

3. Fantoni - Nunes Ítalíu(heimsmeistarar í tví 2002)

Einhverjum töflulýsanda á BridgeBase varð á orði þegar var verið að dæla stigum í Kínverjana: "The gods are with them". Þá var einn fljótur til: "The dogs are with them!" . 2006 er nefnilega "year of the dog" í Kína!

Þeir sem vilja fylgjast með gengi þeirra geta skoða þessar síður.

72 para úrslit í tvímenningnum  Maggi og Matti enduðu í 19.sæti.

Opinber heimasíða keppninnar, mótsblöð o.fl.

Bötlerinn, ath B-riðill

Myndir úr mótinu

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar