Úrslitakeppni Íslandsmóts í tvímenningi

föstudagur, 21. apríl 2006

Úrslitakeppni Íslandsmótsins í tvímenningi fer fram dagana 29. apríl - 1. maí. Keppnisstjóri verður hinn röggsami Björgvin Már Sigurðsson. Í upphafi keppa 56 pör í riðlakeppni. Skipt verður í fjóra 14 para riðla og spila riðlarnir innbyrðis 3 spil á milli para í þremur lotum, samtals 90 spil. Mótanefnd slönguraðar í hópa eftir stigum + 5 ára stigum og handahófsraðar síðan í slönguröð.

Fyrsta lotan verður frá klukkan 11:00 - 15:00 laugardaginn 29. apríl. Önnur lotan verður frá 15:30 - 19:30 og þriðja lotan verður spiluð á sunnudaginn 30. apríl frá 11:00 - 15:00. Eftir það komast 24 pör áfram í úrslitakeppni með barómeterformi og spilað með skermum, 4 spil milli para, samtals 92 spil. Pör taka með sér 15% af skori úr fyrri hluta móts. Fyrsta umferð hefst klukkan 17:00 og spilað til um klukkan 23:00. Umferðir 1-10. Spilamennska hefst aftur klukkan 11:00 1. maí og spiað til um 9:15. Umferðir 11-23.

Spilað verður í Síðumúla 37 og keppnisgjald er krónur 8.000 á parið í upphafi og 4.000 til viðbótar fyrir þau pör sem komast í 24 para úrslitin.  Frestur svæðasambanda til að tilkynna þátttakendur í úrslitin rennur út þriðjudaginn 25. apríl.

Sjá allt um mótið hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar