GÓUMÓTIÐ

fimmtudagur, 6. apríl 2006

Samhliða úrslitunum verður GÓUMÓTIÐ haldið á Hótel Loftleiðum:

1.lota kl. 13:00-16:30 skírdag

2.lota kl. 11:00-14:30 föstudaginn langa

3.lota kl. 15:00-19:00 föstudaginn langa

Spilagjald er 1000 kr. á mann fyrir hverja lotu en ef allar loturnar eru spilaðar kostar það 2500 kr.

Verðlaun eru gómsæt GÓU páskaegg. Besta skor úr tveimur lotum gildir til heildarverðlauna. Efsta sætið í hverri lotu og í heildina fá páskaegg og að auki verður dregið um páskaegg í hverri lotu. Spilað verður um silfur- og gullstig. Fyrir efstu þrjú sætin í hverri lotu verða veitt 24 fyrir fyrsta sæti, 16 fyrir annað sæti og 11 fyrir þriðja sæti. Í lokin verða veitt gullstig til uppbótar fyrir 4 efstu sætin:

1.sæti 5 gullstig
2.sæti 3 gullstig
3.sæti 2 gullstig
4.sæti 1 gullstig 

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar