Jón og Láki unnu tvímenninginn

föstudagur, 17. febrúar 2006

Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson gerðu sér lítið fyrir og sigruðu örugglega í tvímenningi bridgehátíðar. Mikil barátta var um næstu sæti. Í öðru sæti höfnuðu Danirnri Michael Askgård og hinn íslenskættaði Gregers Bjarnarson. Birkir og Steinar Jónssynir náðu svo þriðja sætinu af harðfylgi.

Staða efstu para:

1  Jón Baldursson - Þorlákur Jónsson  60.58%
2  Gregers Bjarnarson - Michael Askgaard  56.23%
3  Birkir Jónsson - Steinar Jónsson  55.73%
4  Brad Moss - Fred Gitelman   55.66%
5  Erik Sælensminde - Andrew McIntosh  55.50%
6  Erla Sigurjónsdóttir - Sigfús Þórðarson  54.94%
7  Nick Sandqvist - Artur Malinowski  54.77%
8  Gylfi Baldursson - Sigurður B Þorsteinsson  54.69%
9  Odin Svendsen - Bjørnar Halderaker  54.64%
10 Rune Hauge - Tor Helness   54.43%
11 Vilhjálmur Sigurðsson jr - Stefán Stefánsson  54.32%
12 Janet de Botton - Gunnar Hallberg  54.14%

Öll úrslit og spil má finna hér: http://www.swangames.com/rama/eventinfo.php?eventid=282692

Jón og Láki

Tvímennings- og stjörnutvímenningsmeistarar: Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar