Fádæma Frábær Fásveitakeppni, ofstuðluð að auki

mánudagur, 19. desember 2005

Rétt náðist á 2 borð í kvöld en spilamennskan var mjög skemmtileg. Frímann átti 29 ára afmæli og mætti með veitingar sem gengu vel í mannskapinn.

Úrslitin í fásveitakeppninni urðu:

1. Gissur Gissurarson - Hans Viggó +41 impi

2. Björn Þorláksson - Frímann Stefánsson +19 impar

3. Sveinbjörn Sigurðsson - Sigurður Marteinsson -9 impar.

Frímanni hefndist mjög fyrir að finna 4-4 fitt í tígli eftir opnun Björns á 2NT 20-22. Hann átti:

S: Q9

H: Q8

T: K943

L: KQT82

Honum varð hugsað til sagnvenjunnar Baron sem er að melda 4 liti upp línuna á 6. sagnstigi og meldaði 6 lauf. Björn sagði 6 tígla og allir pass.

Það merkilega var að allar slemmur stóðu nema 6tíglar! Það var lauf ás úti og litlu hjónin fimmtu í tígli. 6NT voru best en 6h og 6s stóðu á 4-2 fittin og 6c á 5-1 fittið! Björn átti 4441 með gosan blankan í laufi

Þarna var spilamat Frímanns afar slæmt. Kannski var í lagi að melda 6c ef það skyldi vera 9 spila fitt en svo bara breyta 6t í 6NT.

Í síðasta leiknum áttu Björn og Frímann allar tölurnar og þær góðar og töldu sig vera að vinna upp um 30 impa forskotið en þá áttu Víðir og Sigurður frábæran leik líka svo leikurinn vannst aðeins með 5 impum

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar