miðvikudagur, 6. febrúar 2019
Rangæingar -- Óveðurstvímenningur
Sl. þriðjudagskvöld var fyrsta frétt á RUV bein útsending frá
Hvolsvelli, vegna óveðurs á svæðinu. Aftan við
fréttamanninn og blikkandi ljós björgunarsveitarmanna tóku glöggir
áhorfendur eftir bíl feðganna frá Neðra-Dal sem læddist fram
hjá vegatálmum, í gegnum brimskafla og boðaföll, til spilamennsku á
Hvolsvelli, enda flokkast það undir brýn erindi að spila
bridge.