16 liða úrslit í bikar Frábær úrslit á Evrópumótinu í Riga Mikil spenna á Evrópumótinu Skráning í bikarkeppnina Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Bridgefélag Menntaskólans að Laugarvatni

Bridgemót NEMEL

14 pör mættu til leiks á Grand Hotel laugardaginn 16.júní. Skemmtu spilarar sér vel og var mikil spenna um efstu sæti.

Efstu pör:

1. Þröstur Ingimarsson - Ragnar Jónsson                 62,3%
2. Ísak Örn Sigurðsson - Guðmundur Baldursson    61,6%
3. Guðlaugur Sveinsson - Sveinn Rúnar Eiríksson    54,3
4. Kjartan Ingvarsson - Halldór Úlfar Halldórsson   54,2%
5. Halldór Svanbergsson - Guðlaugur Bessason       52,5%
6. Torfi Rúnar Kristjánsson - Hjálmar S. Pálsson      52,4%

NEMEL 2007
3-Sveinn Rúnar Eiríksson - Guðlaugur Sveinsson, 1-Þröstur Ingimarsson -Ragnar Jónsson,
2-Ísak Örn Sigurðsson - Guðmundur Baldursson


Það styttist í hið árlega mót Bridgefélags Menntaskólans að Laugarvatni, 16. júní !
 
Nú verður spilaður "árshátíðar"-tvímenningur en ekki einmenningur eins og í fyrra. Þeir sem mæta tímanlega geta jafnvel fundið makker á staðnum. Athugið að mótið er öllum opið
 
Mótið verður haldið á Grand Hotel Sigtúni 38 og hefst spilamennska kl. 14. Áætlað að klárist um 18:30. Keppnisgjaldi verður stillt í hóf, 1500kr á mann eins og í fyrra. Verðlaun fyrir 3 efstu sætin ásamt því að afhent verða sérstök Kjartans-verðlaun. Léttar innákomur og léttar veitingar verða leyfðar í hófi, enda er hér um hóf að ræða.
 
Vissara að skrá sig sem fyrst til að tryggja þátttöku og að auðvelda skipulagningu. Skráning hjá Ómari Olgeirssyni í síma 869-1275 eða  icearif@hotmail.com 
Endilega minnið félagana á mótið og að skrá sig í tíma áður en salurinn fyllist en salurinn er mun stærri en í fyrra!
 
1 Grand á Grand Hótel, hreinn toppur !
 
Sjáumst í stuði 16.júní !!
Ómar "Sharif" Olgeirsson, 
bridgenefndarformaður úr árgangi '94




28 manns mættu til leiks á Nordica á 16.júnímót Bridgefélags Menntaskólans að Laugarvatni. Skemmtu spilarar sér konunglega og menn voru sammála um það að hafa þetta árlegan viðburð, 16.júní. Flestir þátttakendur voru gamlar kempur frá Laugarvatni og margir hverjir höfðu ekki gripið í spil í þónokkur ár. Óðinn Þórarinsson var lengst af í forystu en Aron Þorfinnsson skaust upp fyrir hann í lokaumferðinni. Fékk Aron veglegan farandbikar að launum. Kjartan Ingvarsson náði 3.sætinu og fékk einnig sérstök Kjartansverðlaun en þrír Kjartanar tóku þátt í mótinu.

14

3.Kjartan Ingvarsson, 1. Aron Þorfinsson, 2. Óðinn Þórarinsson og Ómar Olgeirsson keppnisstjóri

Lokastöðuna má sjá hér