Bridgefélag Blönduóss
Upplýsingar: Stefán Berndsen, Sími: 452-4531.
Árlegt Þorsteinsmót í bridge fór fram á
dögunum Sigurvegari mótsins,
annað árið í röð, varð sveit Björns Friðrikssonar með 166 stig, í
öðru sæti varð sveit Netskólans með 123 stig, í þriðja sæti varð
Veiðisveit G.Þ. með 122 stig og í fjórða sæti varð sveit Gunnars
Sveinssonar með 119 stig. Að venju voru verðlaun veitt fyrir fyrstu
3 sætin ásamt því að farandbikar er veittur fyrir sigur. KB banki á
Blönduósi gaf verðlaunin líkt og undanfarin ár. (Af www.huni.is )
Þann
30. desember fór fram hið árlega Þorsteinsmót í bridge. Mótið fór
fram í Félagsheimilinu á Blönduósi að vanda og mættu 10 sveitir til
keppni. Mótið hófst með formlegum hætti kl. 11:00 og lauk í mikilli
spennu rúmlega 20:00 en fyrir síðustu umferðina gátu þrjár sveitir
endað í 2 og 3ja sæti, þvílík var spennan.