Tveggja kvölda Páskatvímenningur hófst í gær og var spilaður monrad-barómeter með 18 pörum. Halldór Einarsson og Guðni Ingvarsson náðu besta skorinu en annars er keppnin mjög jöfn eins og oft áður.
Annað kvöldið af þremur í Íslandsbankatvímenningnum 2009 var spilað fimmtudaginn 26. mars. Staða efstu para þessi: Kristján Már Gunnarsson - Guðmundur Þ.
Halldórsmót B.A. Spilamennskan hjá Bridgefélagi Akureyrar er í fullum gangi en nú er nýlokið þriggja kvölda Board-a-Match Halldórmóti. Það er hraðsveitakeppni þar sem hvert spil gefur stig fyrir hærri tölu auk þess sem impamunur veitir stig.
Sigrún Pétursdóttir og Unnar Atli Guðmundsson voru efst af 30 pörum og unnu sér inn sitthvort páskaeggið. Þau fengu 62,6% skor. Sigurður Kristjánsson og Eiríkur Sigurðsson voru í 2. sæti með 61,8% og Ingólfur Hlynsson og Hermann Friðriksson enduðu í 3ja sæti með 61,5%.
Eftir að keppnisstjóri þurfti að leiðrétta tvö spil síðla kvölds kom í ljós að tvær sveitir urðu efstar og jafnar í þriggja kvölda hraðsveitakeppni hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar sem lauk í gærkvöldi.
Keppni hófst í Íslandsbankatvímenningnum 2009 fimmtudaginn 19. mars. Mótið er þriggja kvölda Barómeterl tvímenningur, þar sem pörin spila 6 spil á milli sín.
Jón Alfreðsson og Eiríkur Jónsson voru efstir af 24 pörum með +74,8. Þeir voru aðeins 3,3 stigum á undan Gabríel Gíslasyni og Sigurðui Steingrímssyni sem voru 1,1 stigi á undan Huldu Hjálmarsdóttur og Halldóri Þorvaldssyni.
Sveit Garðars Garðarssonar er efst eftir tvö kvöld af þremur í hraðsveitakeppni sem nú stendur yfir hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar. Annars er staðan jöfn og spennandi og getur allt gerst næsta mánudag þegar keppninni líkur.
Aðalsveitakeppni BR hefst annað kvöld, þriðjudaginn 17. mars. 10 umferðir monrad og stendur mótið yfir í 5 kvöld. Spilamennska hefst kl. 19 í Síðumúla 37, spilaðir tveir 16 spila leikir á kvöldi.
Tvær sveitir hafa tekið forystu eftir fyrsta kvöld af þremur en nóg er eftir enn af þessu Board-a-Match móti Bridgefélags Akureyrar. Heildarstaðan eftir 1.
Guðmundur og félagar sigðurðu aðalsveitakeppni Briddsfélags Selfoss. Með Guðmundi í sveit voru þeir Ómar Olgeirsson, Gísli Hauksson og Magnús Guðmundsson.
12.mars verður eins kvölds tvímenningur.
Fimtán sveitir mættu til leiks í þriggja kvölda hraðsveitakeppni sem hófst í gær hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar. Eftir er að endurskoða útreikninginn og gætu tölurnar breyst lítilsháttar en staðan er annars þessi eftir fyrsta kvöldið.
Guðmundur félagar leiða aðalsvetakeppni félagsins þegar aðeins ein umferð er eftir. Ólafur Steinason er efstur í butlernum. En búast má við æsispennandi lokaumferð, þar sem hart verður barist um öll sæti bæði sveitakeppninni og butlernum.
Jón Alfreðsson og Eiríkur Jónsson unnu 24 para tvímenning og fengu að launum glæsilgar ostakörfur frá Ostabúðinni. Sigrún Pétursdóttir og Unnar Atli Guðmundsson urðu í 2. sæti og fengu bókina Sveitakeppni eftir Guðmund Pál Arnarson.
Hermann Friðriksson og Jón Guðmar Jónsson sigruðu í Aðaltvímenningi Bridgefélags Hafnarfjarðar og voru í forystu allt mótið sem var fjögurra kvölda barómeter.
Staðan
Páll Þórsson og Sverrir þórisson eru Reykjavíkurmeistarar í tvímenning með 62,1% skor Sjá öll úrslit hér
Sveit Kristjáns B Snorrasonar varð um helgina Vesturlandsmeistari í sveitakeppni. Sveitina skipuðu auk sveitarformannsins þeir Jón Ágúst Guðmundsson, Guðmundur Ólafsson og Hallgrímur Rögnvaldsson.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar