Íslandsmót yngri spilara
Íslandsmót yngri spilara í sveitakeppni og tvímenning-heimasíða
Íslandsmeistarar yngri spilara 2008 í tvímenningi eru Óttar Ingi Oddsson og Gabríel Gíslason. Í öðru sæti voru Davíð Sigurðsson og Sigríður Arnardóttir. Bronsið hlutu Jóhann Sigurðarson og Ingólfur Sigurðarson. Í flokki 20 ára og yngri urðu efstir Davíð Arnar Ólafsson og Gunnar Valur Sigurðsson.
Íslandsmeistarar yngri spilara 2008 í sveitakeppni eru Jóhann Sigurðarson, Ingólfur Sigurðarson, Guðjón Hauksson og Grímur Kristinsson. Til hamingju!
¨ Íslandsmót yngri spilara í sveitakeppni og tvímenning fer fram í Síðumúla 37 Reykjavík helgina 5.-6. apríl 2008.
¨ Byrjað kl. 11:00 báða dagana og spilað til u.þ.b. kl. 17 báða dagana. Sveitakeppni á laugardag og tvímenningur á sunnudag.
¨ Þátttökurétt hafa þeir sem fæddir eftir 1.janúar 1983 (U25)
¨ Þátttaka er ókeypis! Boðið upp á pizzur!
Þeir spilarar sem þurfa að fara um
langan veg eða meira en 100 km verða styrktir af BSÍ.
¨ Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin og spilað er um gullstig!
¨ Hægt að skrá sig í keppnina hér: Sveitakeppni og Tvímenningur - Einnig hjá BSÍ í síma 587-9360, eða í tölvupósti bridge@bridge.is
¨ Tilvalið að hitta spilaáhugafólk á svipuðum aldri og úr öðrum skólum.
¨ Létt og skemmtileg stemning J