Rangæingar -- Blindsker og boðar
Sl. þriðjudag börðumst við Rangæingar á Heimaland, gegnum kafaldsbyl, hvar ekki sá út úr augum. Að vísu er þetta nú aðeins ýkt í huga Strandamannsins, sem kallar þetta nú bara hundslappadrífu, jólasnjó eða eitthvað ámóta meinlítið.
Eftir fimm kvölda þrotlausa vinnu lukum við verkinu á áætlun, þ.e. að ljúka við 5 kvölda Butler félagsins. Það gekk bara vel.
Eftir hæga og varfærna siglingu gegnum rifið, fullt af blindskerjum og boðum, bætti skipstjórinn loks í og náði Sómabátnum Torfa loks á plan. Ýmsir varhugaverðir boðar og grynningar eru á siglingaleiðinni gegnum rifið. Má þar nefna Ólboðann, sem er fremur lítill klettur, efst á Bergþórshvolsgrunninu og getur verið hættulegur, einkum ef lágsjávað er. Gæta þarf sérstakrar varúðar við siglingu nálægt Ólboðanum, því ekki ber mikið á honum svona dags daglega. Tröllið er líka stórhættulegur steindrangur, austarlega á formannsrifinu en það rif er snarbratt, norðarlega í Framsóknardýpinu. Skipstjórinn sneiddi Torfanum listilega fram hjá þessum mannskaðaboðum en hættulegasti drangurinn er þó Björninn. Breiður klettastandur, sem stendur á litlu grunni, Billagrunni. Yst á Billagrunni er svo lítill boði, Eyþórsoddinn, sem fáir steyta á en getur verið varhugaverður í miklu brimi. Eyþórsoddinn er sjaldan á siglingaleið en Björninn er í miðri rennunni og þar hefur margan bátinn borið upp á.
Fáir renna færi á Billagrunni, enda lítið að fá þar, og hættulegt ef rekur upp á Björninn. Þá bætist gjarnan veiðarfæratjón við fiskleysið á grunninu.
Svo fór að skipstjórinn rak hældrifið á Torfa harkalega niður í Björninn. Drifið laskaðist nokkuð og því náði Torfinn ekki fullri ferð eftir það og kom í mark sjónarmun á eftir Birni Dúasyni og félögum.
Lokastaðan í 5 kvölda butler (4 bestu kvöldin telja)
1) Björninn og félagar, 202,5 Impar
2) Sigurður á Torfanum, 175 Impar
3) Tottenhamtröllið og formaðurinn, 162,8 Impar
4) Óli, goðorðsmaður á Bergþórshvoli, 94,3 impar.
Minna var til fyrir aðra.
Úrslit og spil má sjá hér og lokastöðuna (öll 5 kvöldin talin) hér
Næsti þriðjudagur er síðasta spilakvöld fyrir jól. Þá verður gaman, annars er alltaf gaman í þessum góða hópi sem hér spilar, en sérstaklega verður gaman næst, því þá verður jólaölkvöld. Verðlaun verða veitt í öllum flokkum og mikið gaman.