Glæsilegri Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs lokið
fimmtudagur, 7. desember 2017
Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs lauk í kvöld þegar spiluð var þrettánda og síðasta umferðin. Bingi og feðgarnir sigruðu næsta örugglega og urðu feðgarnir Eiður Mar Júlíusson og Július Snorrason efstir í heildarbutler. Á eftir var síðan spilaður stuttur tvímenningur með 15 pörum.
Næsta fimmtudag er Jólatvímenningur með góðum veitingum.