Rangæingar -- Formaðurinn og tröllið

miðvikudagur, 22. nóvember 2017

Sl. þriðjudag komum við Rangæingar saman til að leika aðra umferð í 5 kvölda Butler.  Lékum 33 spil með þátttöku 12 para. 

Formaðurinn kom til leiks með látum.  Hefur verið fjarri góðu gamni á haustdögum,enda í önnum að undirbúa lambakjötsneyslu landsmanna næsta árið.  Nú er því  verki lokið og landsmönnum þar með ekkert að vanbúnaði að hefja lambakjötsneyslu.   Tottenham tröllið hefur lítið mætt heldur, enda Tottenham gengið óvenju vel það sem af er ári.  Að vísu ekki sl. laugardag en þá tapaði liðið fyrir Arsenal.  Við Tottenhamtröllið erum þó sammála um að það sé ekki óeðlilegt, Tottenham tapar alltaf fyrir Arsenal.  Þetta vita menn.

Þeir félagar, formaðurinn og tröllið, voru búnir að taka nokkrar upphitunar- og teyjuæfingar, gerðu það á síðasta spilakvöldi fyrir viku síðan.  Nú var upphitun hins vegar lokið og unnu þeir kvöldið með yfirburðum og fengu í sinn hlut 78 impa.   Næstir í mark urðu blómaskreytingarmennirnir frá Bergþórshvoli, Runólfur og Óli með 45 impa.   Þriðju urðu klerkurnn og meðhjálparinn með 37 impa.

Annars erum við Rangæingar óvenju kátir þessa dagana, þó við séum nú alltaf kátir enda hvergi betra að búa og spila en hér í ríki Framsóknarmanna.   Við gerðum góða reisu til Hamborgar sl. vor en nú er sænski sósíaldemókratinn og Volvounnandinn, Svavar víðförli, búinn að raða saman í 30 manna ferð bridgemanna til Helsinki í vor.   Þar ætlum við að spila við þarlenda, drekka  kannski finnskan vodka, skoða borgina, drekka ef til veil meiri finnskan vodka, skoða Sveaborg, drekka hugsanlega enn meiri finnskan vodka og fara loks naktir í gufu.   Förum svo heim 1. maí.

Úrslit og spil má sjá hér og stöðuna eftir tvö kvöld hér.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar