Rangæingar -- Byr í seglum

miðvikudagur, 15. nóvember 2017

Sl. þriðjudag komum við Rangæingar saman að Heimalandi og lékum fyrsta kvöld í 5 kvölda Butler.   Heldur færri mættu til leiks en kvöldið áður.  Þá var að vísu ölkvöld en ekki í núna.  Má vera að það hafi spilað nokkuð inn í, þó ekki sé það fullyrt.  Til leiks mættu 10 pör og léku 27 spil. 

Slátrarinn og skipstjórinn fara mikinn, byr í seglum og hnífarnir beittir.   Þeir félagar urðu efstir og lönduðu 66 niðurskornum holdaimpum.   Næstir urðu sauðfjárbændurnir Siggi og Jói með 30 þéttholda og vöðvamikla impa af afréttii.  Þriðju urðu svo Bergþórshvolsgoðarnir Runólfur og Óli með 19 léttinnbrennda impa.

Aðrir fengu minna. 

Úrslit og spil má sjá hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar