Háspenna í butlernum hjá BR
miðvikudagur, 27. september 2017
Annað kvöldið af þremur í Butlertvímenningi Bridgefélags Reykjavíkur var spilað í gærkvöldi. Besta skori kvöldsins náðu Ari Konráðsson og Egill Darri Brynjólfsson með 46 impa í plús sem fleytti þeim upp í fimmta sætið samtals. Efstir fyrir lokakvöldið sem spilað verður næsta þriðjudag eru Ómar Olgeirsson og Ragnar Magnússon með 53,5 impa samtals.
Allt um það á HEIMASÍÐUNNI