Rangæingar -- Vopnaskak
Við Rangæingar settumst að spilum á þriðjudaginn að vanda, nú til að leika 2. umferðina í Samverkstvímenningnum. Til leiks að Heimalandi mættu 13pör.
Þar sem óvenju vel lá á spilastjóra og gjaldkeranum voru veitt vot verðlaun í hinum ýmsu flokkum.
Sýslumannsfrúin í Varmahlíð kom vel stemmdur til leiks með djáknanum frá Steinum. Þeir félagar komu 59,2% skori í hús, næsta auðveldlega. Næstir komu búhöldurinn á Bergþórshvoli og Óli Jón með 57,5% skor og þriðju prestakallarnir Halldór og Kristján með 55,4% skor. Framangreindir fengu vitaskuld mest af votverðlaununum kvöldsins, í réttum árangurshlutföllum.
Skáldið sat við spil ásamt Birninum bjarta og var létt yfir þeim félögum. Ekki komust þeir á blað en skáldið leit yfir úrslitin og mælti:
Engin virtist yfirsjón,
ákaft vopnin skóku,
Þeir Sigurður og Sigurjón,
saman gullið tóku.
----------------------------------------
Fundu nokkur farsæl geim,
flest á góðu róli.
Reifir silfrið reiddu heim,
Runólfur og Óli
----------------------------------------
Áttu kappar ágætt skor,
ávallt héldu í trúna.
Kristján Mikk og klerkur vor,
kræktu í bronsið núna.
Úrslitin og spilin má sjá hér og stöðuna eftir tvö kvöld hér