Rangæingar -- Nýir vendir
Sl. þriðjudag komum við Rangæingar saman á Heimalandi og lékum fjórðu og næst síðustu umferðina í Samverkstvímenningnum. Úrslitin urðu ekki eftir bókinni, ef sú bók er á annað borð til.
Spilamennska forystusauðanna í þessum góða hóp þetta kvöld var ekki til útflutnings, sem er aðeins galli þar sem nú styttist mjög í útflutning hennar, enda einungis 4 vikur í Hamborgarferð félagsins.
Kallinn og Ellinn komu hins vegar sterkir inn og luku leik með 61,7% skor. Næstir inn urðu æfingafélagarnir og eðalkratarnir Svavar og Ægir með 57,1% skor, jafnir samvinnu- og kaupfélagssinnunum Einar og Kristjáni Bæði pör fengu 57,1% skor að launum fyrir sitt framlag.
Fleiri afrek voru ekki unnin þetta kvöld.