Rangæingar -- Listerinn gamli hrökk loks í gang
Sl. þriðjudag lukum við Rangæingar leik í Samverkstvímenningnum og höfðum þá ríslað okkur við það í ein fimm kvöld. 14 pör mættu til leiks. Heldur höfðu gömlu dísilvélarnar hökt undanfarið, einhverjar gangtruflanir gert vart við sig en nú hrökk gamli Listerinn í gang og gekk þýðlega þetta kvöldið, því góðtemplararnir Sigurður og Torfi unnu kvöldið nokkuð örugglega með 64,1% skor og þar með Samverkstvímenninginn, þar sem Bjorn stórtemplar frá Húsavík náði sér ekki á strik þetta kvöldið, enda Eyþórslaus og lauk leik á innan við 50% skori. Þar með missti hann frá sér efsta sætið.
Það komust fleiri dísildrekar í gang þetta kvöld eftir að hafa gengið afar illa undanfarið. Prestakallarnir urðu í 2. sæti með 62,5% skor og þriðju urðu fisksalinn og fisksaladrengurinn með 55,1% skor.
Úrslit í Samverkstvímenningnum urðu þessi, samantalið prósentuskor fjögurra bestu kvöldanna:
1) Sigurður-Torfi 230,7
2) Bjorn-Eyþór/Kalli/Maggi 226,3
3) Kristján-Halldór 225,0
Úrslit kvöldsins og spil má sjá hér og öll kvöldin fimm samanlögð hér