Rangæingar -- Björninn breiði
Sl. þriðjudag komu Framsóknarmenn í Rangárþingi, og tveir eða þrír að auki, saman að Heimalandi til að leika þriðju umferð í Samverkstvímenningnum. Til leiks mættu 14 pör. En hver getur stoppað Björninn breiða? Á árum áður var Björninn breiður um herðar og er svo sem enn breiður en núorðið einkum um mittið. "Sé ég með Eyþór" sagði Björninn að leikslokum í gær, enda mikill aðdáandi Dúdda úr "Með allt á hreinu", "þá nær mér enginn".
Þeir félagar fóru enda mikinn og tóku myndarskor, 64,4%. Útgerðarmaðurinn og Héraðshöfðinginn komu næstir inn með 60,9% skor og þriðju urðu reglubræðurnir Svavar og Jói með 56,1% skor. Besta kvöldið hjá þeim í langan tíma, vel gert drengir!
Aðrir fengu minna, og sumir miklu minna, eins og skáldið sem var andlaus í spilamennskunni þetta kvöldið og er enn andlaus, svo engar eru vísurnar í þetta sinn.
Úrslit kvöldsins og spilin má sjá hér og stöðuna eftir þrjú kvöld hér