Rangæingar -- Enginn bilbugur á bóndanum
Við Rangæingar komum saman í gærkvöldi og lékum 3ju umferð í sveitakeppninni. Engan bilbug er að finna á Kanastaðabóndanum, enda stýrir Silla þeim styrkri hendi. Mættu hestamanninum og hans haukum úr horninu í gær. Hestamaðurinn er hár til hnésins og lét bóndann ekki ná á sig hælkrók, né sniðglímu. Eftir 28 spila leik varð niðurstaðan jafnglími, 10-10. Bóndinn situr þar með í efsta sæti með 39,48 stig. Presturinn, sem lagði formanninn 14,48-5,52, fylgir í humáttina með 37,32 stig og Fisksalinn sem innbyrti þægileg 12 yfirsetustig er svo í þriðja með 34,73. Aðrar sveitir eru með minna.
Úrslit og stöðu í sveitakeppninni má sjá hér. Butler og spil úr fyrri hálfleik hér og úr þeim seinni hér