laugardagur, 23. apríl 2016
Heiðar og Logi unnu Davíðsmótið í Dölum vestur
Hið árlega Davíðsmót, til minningar um Davíð Stefánsson á
Saurhóli í Saurbæ var haldið í dag. Borgfirðingarnir Heiðar
Baldursson og Logi Sigurðsson gerðu góða ferð í Dalina, fyrst með
því að húkka sér far með keppnisstjóranum og síðan með því
að koma klifjaðir verðlaunum til baka eftir harða baráttu
við bikarhafana frá í fyrra, bræðurna Odd og Árna Hannessyni.