Rangæingar -- Ellinn, Kallinn og nafnarnir
Sl. þriðjudagskvöld var fimmta og síðasta umferðin í 5 kvölda Butler félagsins leikin. Ellarnir, ungir menn á uppleið, eru að komast á gríðarlegt skrið. Í 2. sæti síðast og unnu svo núna með 201 (Imps across the field). Á eftir þeim komu nafnarnir með 193 og í 3. sæti urðu svo peyjarnir, Sigurður og Torfi, með 140.
Lokastaðan í Butlernum, þar sem 4 bestu kvöldin af 5 telja:
1) Magnús Halldórsson-Magnús Bjarnason 691,3 (773,3 öll 5 kvöldin)
2) Sigurður Skagfjörð-Torfi Jónsson 612,5 (572,5 öll 5 kvöldin)
3) Erlendur Guðmundsson-Karl Sigurjónsson 546 (548,3 öll 5 kvöldin)
4) Eyþór Jónsson-Björn Dúason 506 (468,0 öll 5 kvöldin)
Eins og sést er röðin óbreytt hvort heldur öll kvöldin eru talin eða bara bestu 4. Sigurvegurunum, Möggunum mögnuðu, óskum við innilega til hamingju með glæsilegan sigur. Þeir spiluðu jafnan og góðan bridds öll kvöldin.
Úrslit og spil kvöldsins má sjá hér
Lokastöðuna í Butlernum má svo sjá hér