HSK mót í bridds 2014

föstudagur, 20. desember 2013

HSK mót í bridds 2014 

HSK mótið í tvímenningi verður haldið í Selinu á Selfossi fimmtudaginn 2. janúar nk. kl. 18:00. Spilaðar verða 11 umferðir með 4 spilum á milli para, Monrad röðun, alls 44 spil. Spilað verður um silfurstig og verður ungmennafélagsandinn í hávegum hafður. Skráningu er nú lokið, en þær þurftu að hafa borist fyrir kl. 12:00 fimmtudaginn 2. janúar á heimasíðu briddsfélags Selfoss, slóðin er http://bokun.netberg.is/bridgeselfoss/. Athugið að takmarkað rými er á spilastað, og aðeins pláss fyrir 18-19 pör, og er það orðið fullbókað. Hafið samband við Ólaf í síma 898 2880 ef þið viljið vera á biðlista, ef eitthvað par dettur út

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar