Benni og Ingvaldur unnu Jólatvímenning BK
fimmtudagur, 19. desember 2013
Jolatvímenningur Bridgefélags Kópavogs fór fram í kvöld og var spilað á 10 borðum. Bernódus Kristinsson og Ingvaldur Gústafsson sigruðu nokkuð örugglega með 62,5% skori og Birgir Örn Steingrímsson og Þórður Björnsson urðu aðrir með 59,7%. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.
Spilamennska hefst aftur eftir jólafrí fimmtudaginn 02. janúar með þriggja kvölda Monrad-tvímenningi.