Rangæingar -- Seigir prestakallarnir

miðvikudagur, 13. nóvember 2013

Sl. þriðjudagskvöld var leikin 2. umferð í 5 kvölda BUTLER-tvímenningi félagsins.   15 pör mættu til leiks og eftir erfiða byrjun, sem m.a. var verðlaunuð með yfirsetu, háðu prestakallarnir, Halldór og Kristján, úrslitaglímu við Jóa og Sigga í lokaumferðinni.  Leikar fóru svo að þeir höfðu sætaskipti og enduðu prestakallarnir efstir með 177,3 einingar (Imps across the field).   Jói og Siggi enduðu með 167 einingar og hesta-Jói og Birgir urðu svo þriðju með 148 eingar.  

Úrslitin og spilin má svo sjá hér

Stöðuna í Butlernum, eftir 2 kvöld af 5, má svo sjá hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar