Hjördís jók forystuna aftur í Kópavogi

föstudagur, 29. nóvember 2013

Eftir tíu umferðir af þrettán í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs hefur sveit Hjördísar Sigurjónsdóttur aukið við forskotið aftur og hefur nú 21 stig á næstu sveit. Þau fengu 36,33 stig af 40 mögulegum í gærkvöldi. Baráttan um næstu sæti er öllu harðari og mun væntanlega harðna enn frekar á lokasprettinum. Sveitakeppninni lýkur tólfta desember og fimmtudaginn nítjánda verður síðan Jólatvímenninur. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar