Hjördís jók forskotið í Aðalsveitakeppni BK

fimmtudagur, 14. nóvember 2013

Þriðja kvöldið af sjö í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs var spilað í gærkvöldi. Eftir sex umferðir af 13 hefur sveit Hjördísar Sigurjónsdóttur tekið góða forystu með 92 stig og 16 stigum meira e næsta sveit. Það verður að teljast góð forysta þar sem mest er hægt að fá 20 stig með nýja útreikningnum. Öll úrslit og stöðuna má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar