Hjördís jók forskotið í Aðalsveitakeppni BK
fimmtudagur, 14. nóvember 2013
Þriðja kvöldið af sjö í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs var spilað í gærkvöldi. Eftir sex umferðir af 13 hefur sveit Hjördísar Sigurjónsdóttur tekið góða forystu með 92 stig og 16 stigum meira e næsta sveit. Það verður að teljast góð forysta þar sem mest er hægt að fá 20 stig með nýja útreikningnum. Öll úrslit og stöðuna má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.