Bridgehátíð Vesturlands
miðvikudagur, 13. nóvember 2013
Bridgehátíð Vesturlands verður haldin á Hótel Hamri helgina 4.-5. jan 2014. Á laugardeginum verður spiluð sveitakeppni, 7x8 spila leikir eftir Monrad. Á sunnudeginum verður spilaður tvímenningur 44 spil eftir Monrad. Búið er að næta við 100 fm sal á Hamri svo nú er nóg pláss! Tilboð á gistingu kr 10.000 á herbergið, morgunmatur 1400 og kvöldmatur á 4500.