Æsispennandi lokasprettur á Suðurnesjum
föstudagur, 1. nóvember 2013
Í gær, fimmtudag, fór fram síðasta kvöldið í haustvímenningi og voru kvöldin 3 en 2 töldu. Í harðri baráttu voru þeir Sigurjón og Oddur við þá Gunnar og Garðar. Þeir síðarnefndu voru á gaóðri leið með að tryggja sér sigur í mótinu en það hafðist ekki og þeir Sigurjón og Oddur sigruðu þetta haustið.
Næst verður spilað 3ja kvöld hraðsveitakeppni þar sem dregið verður í sveitir hvert kvöld og eiga því allir jafnan möguleika. Skemmtilegt fyrirkomulag og hvetjum við alla til að mæta.