BH: Gunnlaugur og Högni efstir með 64,4%
miðvikudagur, 25. september 2013
Gunnlaugur Óskarsson og Högni Friðþjófsson unnu seinni einskvölds upphitunartvímening félagsins. Þeir enduðu með 64,4% skor sem var tæp 5% ofar en þær Harpa Fold og Svala sem urðu í 2. sæti. Jafnir í 3. sæti voru Ólafur Þór Jóhannsson, Pétur Sigurðsson, Halldór Svanbergsson og Brynar Jónsson.
Næsta keppni félagsins er 3ja kvölda Gamla vínhús butler tvímenningur.
Gamla vínhúsið veitir glæsileg verðlaun.