Landsmót UMFÍ 50+
miðvikudagur, 22. maí 2013
Kæru
félagar
Helgina
7. - 9. júní verður 3. Landsmót UMFÍ 50 + haldið í Vík í
Mýrdal.
Við
hvetjum ykkur til að taka þátt í þessu skemmtilega móti
J
og
senda þessar upplýsingar á sem flesta. Allir geta tekið þátt í
mótinu óháð félagsaðild að ungmennafélagi.
Mótið er íþrótta - og heilsuhátíð með fjölbreyttri dagskrá. Auk
keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum verður boðið
upp á ýmsa afþreyingu fyrir
keppendur og gesti. Einnig verður boðið upp á fræðslu um hollustu
og heilbrigðan lífsstíl ásamt fjölda annarra viðburða.
Framkvæmd mótsins verður í höndum Ungmennasamband
Vestur-Skaftafellssýslu (USVS),
Ungmennafélags Íslands og Mýrdalshrepps.
Fyrirhugaðar keppnisgreinar í Keppnisgreinar á mótinu eru:
Almenningshlaup, boccia, bridds, golf, frjálsar, íþróttir,
hestaíþróttir, hringdansar, línudans, pútt, ringó, skák,
starfsíþróttir, sund, sýningar, þríþraut og
hjólreiðar. Allir á aldrinum 50 ára og eldri geta tekið þátt í
keppnisgreinum mótsins. Þátttakendur greiða eitt mótsgjald og
öðlast með því þátttökurétt í öllum keppnisgreinum. Mótsgjald er
3500 krónur óháð greinafjölda. Frítt verður á tjaldstæði
mótshelgina í Vík í Mýrdal. Skráning kemur til með að fara fram á
heimasíðu mótsins
www.landsmotumfi50.is
.
Sjáumst á Landsmóti UMFÍ 50 + í Vík í Mýrdal 7. - 9. júní 2013 kát
og hress J
.
Mínar allra bestu kveðjur,Sigurður Guðmundsson framkvæmdarstjóri
Landsmóts UMFÍ 50 +Frekari upplýsingar
um mótið er að finna inn á www.landsmotumfi50.is
eða senda póst
á sigurdur@umfi.is
sími: 568-2929