Síðasta spilakvöld vetrarins í Kópavogi

þriðjudagur, 30. apríl 2013

Síðasta spilakvöld vetrarins hjá Bridgefélagi Kópavogs verður fimmtudaginn 02 maí kl. 19:00. Þá verður spilaður Howell eða Mitchell tvímenningur sem fer eftir borðafjölda. Verðlaun verða fyrir efsta sætið. Spilað er í Gjábakka, félagsheimili aldraðra, Fannborg 8.

Þetta kvöld verður ennig verðlaunaafhending fyrir þau mót sem spiluð voru eftir áramót. Einnig verður krýndur Bronsstigameistari vetrarins.

Aðalfundur Bridgefélags Kópavogs verður haldinn föstudaginn 24 maí kl. 20:00 að Fjallalind 7, heima hjá Þorsteini Berg. Venjuleg aðalfundarstörf.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar