Kristján og Ásmundur rétt mörðu sigur
fimmtudagur, 25. apríl 2013
Þriggja kvölda Moradtvímenningi Bridgefélags Kópavogs lauk nú í kvöld með afar naumum sigri þeirra Kristjáns Snorrasonar og Ásmundar Örnólfssonar. Samanlögð prósentuskor kvöldanna þriggja gilti til verðlauna og höfðu Kridtján og Ásmundur um tíma 5 prósentur i forskot á næsta par en gáfu eftir í lokin og enduðu með aðeins 0,1% meira en þeir Ragnar Björnsson og Sigurður Sigurjónsson. Öll úrslit og lokastöðuna má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs.
Síðasta spilakvöld vetrarins verður næsta fimmtudag og verður spilaður eins kvölds Howell-tvímenningur. Allir velkomnir.