Suðurlandsmót í tvímenning -- síungir Suðurlandsmeistarar
sunnudagur, 24. mars 2013
Suðurlandsmótið í tvímenning var haldið á heimavelli Bridgefélags Rangæinga að Heimalandi undir V-Eyjafjöllum, laugardaginn 23. mars. 18 pör mættu til leiks og fóru leikar svo að Gísli Þórarinsson og Þórður Sigurðsson urðu Suðurlandsmeistarar með 59,7% skor. "Þetta var bara létt og ágreiningslítið hjá okkur Þórði" sagði Gísli kátur og fékk sér duglega í nefið um leið og hann bauð Bjössa Snorra í nefið en Björn og Guðmundur Þ. Gunnarsson urðu einmitt í 2. sæti með 57,0% skor. Helgi Hermannsson og Brynjólfur Gestsson urðu svo í 3. sæti með 55,6% skor en hvorugur þeirra tekur í nefið.
Lokastöðu og spil má sjá hér