Rangæingar -- Prestakallarnir komnir á beinu brautina aftur
Þriðjudaginn 12. mars hófst 5 kvölda aðaltvímenningur félagsins. Ekki var að sjá að það hefði teljandi áhrif á spilamennsku séra Halldórs að yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn á dögunum, nema þá fremur til bóta en hitt, því eftir fremur magra daga í sveitakeppninni unnu þeir félagarnir næsta öruggan sigur á þessu 1. kvöldi, með 60,7% skor. Næstir á eftir þeim komu Eyjapeyjarnir Eyþór og Bjössi Dúa með 57,4% skor. Í þriðja sæti urðu svo Bergur formaður og Friðrik Þórarinsson með 55,7% skor en svo skemmtilega vill einmitt til að Friðrik er hinn aðdáandi Tottenham Hotspur á Íslandi! 15 pör mættu til leiks á þessu 1. kvöldi keppninnar.
Úrslit og spilin má sjá hér