Rangæingar -- Bankastjórinn lagði inn á bókina
miðvikudagur, 20. mars 2013
Þann 19. mars var leikin önnur umferð í Aðaltvímenning félagsins. Bankastjórinn og slátrarinn lögðu gott skor inn á mótsbókina sína þegar þeir lönduðu harðsóttum sigri með 60,1% skori. Næstir á eftir þeim urðu Torfi trillukarl og hinn glerharði Diddi með 58,6% skor. Eyjapeyjarnir, Bjössi og Eyji, eru í myljandi stuði þessa dagana og nældu sér í 3ja sætið með 56,5% skori.
Eyjapeyjarnir leiða nú mótið með 114% uppsafnað skor en Diddi og Torfi eru á hælum þeirra með 113,5% uppsafnað.
Úrslit kvöldsins og spilin má sjá hér en staðan eftir tvö kvöld af fimm sést hér