Gísli og Leifur leiða Aðaltvímenning BK

föstudagur, 8. febrúar 2013

Þegar búið er að spila tvö kvöld af fjórum í Aðaltvímenningi Bridgefélags Kópavogs hafa Gísli Tryggvason og Leifur Kristjánsson  forystu með 60,1% skor og hafa hátt í þriggja prósenta forskot á Hjördísi Sigurjónsdóttur og Kristján Blöndal. Besta skori kvöldsins náðu hinsvegar Hallgrímur Hallgrímsson og Sigmundur Stefánsson með 61,5%. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kópavogs

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar