Bridgefélag Selfoss: sveit Gunnars Þ. efst

föstudagur, 15. febrúar 2013

Nú er keppni hálfnuð í aðalsveitakeppni Bridgefélags Selfoss. Spilaðir eru 2 14 spila leikir á kvöldi.

Efstir í mótinu er sveit Gunnars Þ. með 84 stig, en hana skipa Gunnar Þórðarson, Garðar Garðarsson, Gísli Hauksson, Magnús Guðmundsson og Ríkharður Sverrisson. Í öðru sæti er síðan sveit Ólafs með 76  stig, og sveit Antons í þriðja með 67 stig.

Efstur í butler er Gunnar Þórðarson með 1,71 eftir 28 spil og annar er Garðar Garðarsson er með 1,32 eftir 56 spil.

 Nánar um mótið, úrslit leikja, spilagjöf og butlerútreikning má finna á þessari síðu. Athugið að það getur þurft að ýta á Refresh (F5) á síðunum til að sjá uppfærð úrslit (4 leikir búnir en ekki 2).

Næstu 2 umferðir verða spilaðar fimmtudagskvöldið 21. febrúar.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar