Bridgefélag Rangæinga (22)
Nafnarnir Magnús sigldu sigri sínum nær örugglega í höfn núna síðastliðið þriðjudagskvöld og voru fáir sem gerðu sig líklega til þess að standa í vegi fyrir þeim. Þeir náðu 136 stigum eða 61.82% skori. En það er frábært að geta sagt frá því að nýliðarnir okkar þeir Valtýr og Guðjón voru mjög nálægt því að næla sér í sín fyrstu bronsstig og ljóst að þarna fara um völl meistarar framtíðarinnar! Glæsilegur árangur á strákunum þar sem þeir náðu að "velta" sér í 6 sætið. En með þessum frábæra árangri settu þeir marga reynda og góða spilara fyrir aftan sig sem bendir til þess að menn þurfi að setja baggaband í strenginn fyrir komandi vetur ef ekkert annað dugar. Nánar um úrslit hér.